Fotbolti.net
01.09.26 - 10:59
Elvar Geir Magnússon

Mónakó hafnaði tilboði frá Chelsea í Camara

Gasperini vill ekki að Kone verði seldur

Lamine Camara, til hægri.

Lamine Camara, til hægri.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea gerði 38,5 milljóna punda tilboð í miðjumanninn Lamine Camara hjá Mónakó en franska félagið hafnaði því.

Camara er 22 ára landsliðsmaður Senegal sem gerði flotta hluti í frönsku deildinni á síðustu leiktíð. Hann á 49 landsleiki að baki þrátt fyrir ungan aldur.

Þetta tilboð er hluti af áætlunum Chelsea um að leysa Enzo Fernandez af hólmi, sem er að nálgast félagaskipti til Manchester City fyrir um 120 milljónir punda.
Kone til Chelsea?
TENGT EFNI

Kone til Chelsea?

Chelsea hefur einnig verið orðað við Manu Kone, franska landsliðsmiðjumanninn hjá Roma.

Íþróttafréttamaðurinn Nizaar Kinsella segir klárt að Kone sé á blaði hjá Chelsea en ítalska félagið segir að ekki hafi neitt formlegt tilboð borist. Gian Piero Gasperini, stjóri Roma, vill alls ekki missa leikmanninn og ólíklegt er talið að hann verði seldur.

Fréttin hefur verið uppfærð
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.