Fotbolti.net
01.09.26 - 14:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Newcastle hafnar öðru tilboði frá Forest

Newcastle hafnar öðru tilboði frá Forest
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest vill fá Jacob Murphy í sínar raðir en Newcastle hefur hafnað tveimur tilboðum í kantmanninn. Seinna tilboðið er sagt hafa hljóðað upp á 15 milljónir punda. Bæði félög eru í ensku úrvalsdeildinni.

Murphy hefur verið hjá Newcastle síðan 2019 en framtíð hans hefur verið í lausu lofti í sumar.

Everton sýndi áhuga fyrr í sumar og um helgina hafnaði Newcastle tilboði frá Forest. Og nú var öðru tilboði hafnað.
Forest þarf að hækka sig til að fá Murphy yfir til félagsns fyrir gluggalok í kvöld. Hann er 31 árs, hefur spilað 267 leiki fyrir Newcastle, skorað 25 mörk og lagt upp 39.

Forest vill fá inn kantmann eftir að Omari Hutchinson var lánaður til AC Milan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.