Fotbolti.net
01.09.26 - 16:33
Brynjar Ingi Erluson

Öðru tilboði Chelsea í Camara hafnað

Öðru tilboði Chelsea í Camara hafnað
Canon

Mynd: EPA

Mónakó hefur hafnað öðru tilboði Chelsea í senegalska miðjumanninn Lamine Camara. Þetta segir franski blaðamaðurinn Fabrice Hawkins.
Chelsea leitar að miðjumanni í stað Enzo Fernandez sem er á leið til Manchester City fyrir 125 milljónir punda.

Félagið hefur nokkra leikmenn á óskalistanum en Manu Kone og Camara eru sagðir efstir á honum. Mónakó hafnaði í gær fyrsta tilboði Chelsea í Camara sem hljóðaði upp á 45 milljónir evra.

Blaðamaðurinn Hawkins segir franska félagið nú einnig hafa hafnað öðru tilboði upp á 50 milljónir evra og að Mónakó sé ekki reiðubúið að selja Camara svo skömmu fyrir lok félagaskiptagluggans.

Þá segir annar franskur blaðamaður, Djamel, að Chelsea ætli ekki heldur að kaupa Kone frá Roma.

Gian Piero Gasperini, þjálfari Roma, er að standa í vegi fyrir skiptunum en hann vill alls ekki missa franska landsliðsmanninn frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.