Fotbolti.net
01.09.26 - 13:35
Elvar Geir Magnússon

Palace reynir við japanskan landsliðsmann

Kaishu Sano í landsleik með Japan.

Kaishu Sano í landsleik með Japan.

Canon

Mynd: EPA

Crystal Palace vonast til að geta styrkt sig á gluggadeginum og hefur athugað hvort Kaishu Sano, miðjumaður Mainz, sé falur.
Breska ríkisútvarpið segir Palace hafa sett sig í samband við þýska félagið og skoði möguleika á að kaupa hann fyrir um 30 milljónir punda.

Sano er 25 ára og á sextán landsleiki fyrir Japan og skoraði í 2-1 tapi gegn Brasilíu í sumar.

Hann hefur í gegnum tíðina verið orðaður við Liverpool, Arsenal, Tottenham og Borussia Dortmund.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.