Fotbolti.net
01.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ráðleggur Grealish að vera áfram í Manchester

Ráðleggur Grealish að vera áfram í Manchester
Canon

Mynd: EPA

Fótboltasérfræðingurinn Gary Neville skilur ekki hvers vegna Jack Grealish vill skipta frá Manchester City til Everton.
Grealish í læknisskoðun hjá Everton
TENGT EFNI

Grealish í læknisskoðun hjá Everton

Grealish er aðeins með eitt ár eftir af samningi við City og er á leið í læknisskoðun hjá Everton í dag. Neville ráðleggur Grealish að hætta við og vera áfram í Manchester.

„Í staðinn fyrir að fara til félags sem hentar ekki þínum leikstíl er betra að vera áfram um kyrt. Það er betra fyrir þig að vera áfram hjá Manchester City, spila 20 leiki á tímabilinu og mögulega vinna eitthvað. Þá ertu að spila fyrir frábært lið og getur sýnt gæðin þín," sagði Neville.

„Ég myndi persónulega alltaf kjósa að vera áfram hjá City. Ég er sannfærður um að það væri betra fyrir Jack Grealish að vera áfram."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.