01.09.26 - 21:02
Brynjar Ingi Erluson
Renato Sanches riftir við PSG

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Renato Sanches hefur fengið samningi sínum við Evrópumeistara Paris Saint-Germain rift. Þetta segir Fabrizio Romano og L'Equipe í kvöld.
Sanches var eitt sinn talinn efnilegasti miðjumaður heims. Hann fór á kostum með Benfica tímabilið 2015-16 og var valinn besti ungi leikmaður Evrópumótsins þegar Portúgal varð Evrópumeistari og valinn Gulldrengur ársins.
Í kjölfarið var hann seldur til Bayern München en náði sér aldrei almennilega á strik í Þýskalandi. Ferillinn vaknaði aftur til lífsins þegar hann gekk til liðs við Lille árið 2019 og varð franskur meistari með félaginu áður en Paris Saint-Germain keypti hann.
Sanches er 29 ára og tókst aldrei að sýna sitt besta hjá PSG. Hann var lánaður frá félaginu þrisvar, fyrst til Roma, þá Panathinaikos og síðast til uppeldisfélagsins Benfica.
Miðjumaðurinn hefur nú komist að samkomulagi við PSG um að rifta samningnum og er því laus allra mála.