01.09.26 - 09:51
Elvar Geir Magnússon
Richarlison fer ekki til Everton en Grealish og Balogun eru á leiðinni

Gluggadagurinn er í dag.

Mynd: EPA

Gluggadagurinn er í dag.

Mynd: EPA
Sky Sports segir að Richarlison, sóknarmaður Tottenham, muni ekki ganga í raðir Everton á nýjan leik. Líklegra sé að hann muni fara til Sádi-Arabíu.
Everton er hinsvegar að fá Jack Grealish aftur frá Manchester City á láni út tímabilið. Grealish er í læknisskoðun hjá Everton.
Þá er bandaríski sóknarmaðurinn Folarin Balogun á leið frá Mónakó en Everton er að kaupa hann fyrir 40 milljónir punda. Hann er væntanlegur á æfingasvæði Everton mjög bráðlega.

TENGT EFNI
Richarlison „fórnarlamb slæmra sögusagna"
Einnig er Everton að reyna að fá bakvörðinn Kenny Tete frá Fulham en Lundúnafélagið þarf að fá inn leikmann í staðinn fyrst.