01.09.26 - 17:49
Brynjar Ingi Erluson
Skotmark Man Utd byrjar hjá Leicester í kvöld

Mynd: Leicester City

Mynd: Leicester City
Enski miðjumaðurinn Louis Page er í byrjunarliði Leicester City gegn Plymouth í ensku C-deildinni í kvöld. Það væri ekki sérstaklega fréttnæmt nema fyrir þær sakir að Manchester United vinnur að því að kaupa hann áður en félagaskiptaglugginn lokar.

TENGT EFNI
Man Utd í kapphlaupi við tímann - Vilja klára kaupin á Page
United er í viðræðum við Leicester um hinn unga og efnilega Page, en félagið vill fá meira en 15 milljónir punda fyrir miðjumanninn. Arsenal hefur einnig sýnt honum áhuga en United leiðir baráttuna.
Nú virðist hins vegar komið bakslag í viðræðurnar því Page er í byrjunarliði Leicester gegn Plymouth í kvöld. Það vekur upp spurningar um hvort hann fari frá félaginu áður en glugginn lokar.
Page er 18 ára og leikur með yngri landsliðum Englands. Staðan ætti að skýrast betur eftir leik Leicester í kvöld.

Louis Page starts for Leicester City against Plymouth. Manchester United have been in talks to try and sign Page on deadline day.???? pic.twitter.com/dyGtHxgKv0
— Ben Jacobs (@JacobsBen) September 1, 2026