Fotbolti.net
01.09.26 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tölfræðin segir Blika eiga að vera mun neðar

Breiðablik fagnar marki í sumar.

Breiðablik fagnar marki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frammistaða Breiðabliks var ekki merkileg gegn Stjörnunni í gær og hún hefur ekki verið merkilegt í svo gott sem allt sumar.

Þessi frétt er hluti af áskriftarpistli sem birtist hér á Fótbolta.net í gær. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Breiðablik er með 30 stig eftir 21 leik og situr í fjórða sæti deildarinnar. Samkvæmt 'expected points' tölfræði liðsins ætti það hins vegar aðeins að vera með 25,2 stig í níunda sæti deildarinnar. Þetta er tölfræði sem metur frammistöðu liðs út frá færum sem það er að skapa og fá á sig í hverjum leik, x-Ginu.

Fyrir leikinn gegn Stjörnunni í gær voru aðeins Akureyrarliðin tvö fyrir neðan Breiðablik í þessari tölfræði sem gefur góða mynd af frammistöðu liðs. Breiðablik er núna með 25,2 stig, með 0,2 meira en ÍBV sem er núna í tíunda sætinu.

Frammistaðan hefur, samkvæmt tölfræðinni, alls ekki verið nógu góð hjá Breiðabliki í sumar. Ef horft er í xG-ið frá WyScout þá er Breiðablik búið að vera hættulegra liðið í sjö leikjum af 21 í Bestu deildinni í sumar.

Þetta er svo sannarlega áhyggjuefni þegar stutt er í bikarúrslitaleikinn þar sem Breiðablik mætir Aftureldingu.

Tvö stór félög sem eru í bullandi brasi
TENGT EFNI

Tvö stór félög sem eru í bullandi brasi

Úr leik Breiðabliks og Keflavíkur þar sem Blikar unnu með 0,6 í xG á móti 1,23 xG hjá Keflavík.

Úr leik Breiðabliks og Keflavíkur þar sem Blikar unnu með 0,6 í xG á móti 1,23 xG hjá Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.