Fotbolti.net
01.09.26 - 13:18
Elvar Geir Magnússon

Tveir í læknisskoðun hjá Fulham

Hugo Larsson kemur frá Eintracht Frankfurt.

Hugo Larsson kemur frá Eintracht Frankfurt.

Canon

Mynd: EPA

Fulham hefur komist að samkomulagi um kaup á Hugo Larsson og Manuel Angel.

Larsson, sem er 22 ára miðjumaður, er keyptur á um 22 milljónir punda frá Eintracht Frankfurt í Þýskalandi. Hann á að baki 12 landsleiki fyrir Svíþjóð.
Angel, sem er einnig 22 ára miðjumaður, verður þriðji leikmaðurinn sem Fulham fær frá Real Madrid í sumar, eftir að Gonzalo García og César Palacios komu til liðs við félagið. Alvaro Arbeloa, sem stýrði Real Madrid á síðasta tímabili, tók við Fulham í sumar.

Larsson og Angel hafa báðir fengið græn ljós á að fara í læknisskoðun hjá Fulham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.