Fotbolti.net
01.09.26 - 21:30
Kári Snorrason

„Var að æfa nákvæmlega þetta skot í gær“

Auglýsing
Fagnar marki sínu.

Fagnar marki sínu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst þetta nokkuð jafn leikur. Svo skorum við þetta mark í lokin en dekkningin klikkar í jöfnunarmarkinu þeirra sem var mjög svekkjandi, segir Ármann Ingi Finnbogason sem skoraði eina mark Víkings í 1-1 jafntefli liðsins gegn KR á Meistaravöllum fyrr í kvöld.

„Þetta var helvíti gott mark. Ég var búinn að æfa nákvæmlega þetta skot í gær og ég fæ það í dag og set hann,“ segir Ármann aðspurður um eigið mark.

Rúmlega 4300 manns sóttu Meistaravelli í dag. „Það er geðveikt að spila fyrir svona marga. Stuðningsmenn Víkings eru bara geggjaðir.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.