01.09.26 - 22:00
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: KR og Víkingur einn af best sóttu leikjunum

Meistaravellir voru þétt setnir í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Áhorfendur á toppslag KR og Víkings á Meistaravöllum í kvöld voru 4.337 talsins og þar með er viðureign liðanna komin á blað með best sóttu leikjum í efstu deild karla í íslenskum fótbolta frá upphafi.
Tólf ár eru síðan fleiri áhorfendur hafa mætt á völlinn en 6.450 manns voru á Kaplakrikavelli í lokaumferð Íslandsmótsins árið 2014 þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari eftir magnað einvígi og hreinan úrslitaleik gegn FH.
Sá leikur er enn þann dag í dag besti sótti leikurinn í hefðbundinni deildakeppni Íslandsmóts karla en tvisvar hafa fleiri áhorfendur mætt til að sjá hreinan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn, á þeim árum sem markatala réð ekki úrslitum ef lið enduðu jöfn að stigum, og í minnsta kosti 22 skipti hafa áhorfendur verið fjögur þúsund eða fleiri.
Af þeim 22 leikjum eru aðeins fimm á þessari öld.