Fotbolti.net
01.09.26 - 21:19
Brynjar Ingi Erluson

Zirkzee verður áfram hjá Man Utd

Zirkzee verður áfram hjá Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Joshua Zirkzee, framherji Manchester United, verður áfram hjá félaginu þrátt fyrir að Everton hafi spurst fyrir um hann á síðustu klukkustundum félagaskiptagluggans.
Everton hafði samband við Manchester United vegna Zirkzee eftir að Folarin Balogun féll á læknisskoðun. Hollendingurinn var hugsaður sem varakostur ef Everton tækist ekki að landa Balogun.

Matteo Moretto og fleiri fjölmiðlar töldu Zirkzee á leið til Everton á láni en greina nú frá því að Manchester United hafi ákveðið að halda honum.

Tilboð Everton er talið hafa verið 10 milljónir punda til að fá hann á láni og var reiðubúið að greiða allan launakostnað.

Zirkzee hafnaði sjálfur tilboðum frá Ítalíu fyrr í glugganum og er harðákveðinn í að berjast fyrir sæti sínu hjá United á þessari leiktíð.

Hann gekk til liðs við félagið frá Bologna fyrir tveimur árum og hefur skorað níu mörk í 75 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.