Fotbolti.net
01.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Eigendaskipti hjá Northampton: Pato tekur sæti í stjórninni

Eigendaskipti hjá Northampton: Pato tekur sæti í stjórninni
Canon

Mynd: EPA

Alexandre Pato, fyrrum leikmaður Chelsea, AC Milan og brasilíska landsliðsins, er meðal nýrra eigenda enska fótboltafélagsins Northampton Town FC.
Hann er hluti af Sports Alpha Capital sem er búið að tryggja sér 70% hlut í Northampton, sem leikur í fjórðu efstu deild enska deildakerfisins - League Two deildinni. Þar er liðið aðeins með 6 stig eftir 7 fyrstu umferðir tímabilsins.

Nýir eigendur koma með pening til félagsins, sem er orðið skuldlaust eftir að hafa greint frá rétt tæpu 3 milljóna punda tapi í síðasta uppgjöri í apríl.

Kelvin Thomas stígur úr forsetastólnum eftir rúman áratug og heldur áfram hlut í félaginu ásamt meðeigendunum David Bower og Nigel Le Quesne. Þeir þrír deila 30% hlut sín á milli og munu áfram starfa í stjórn félagsins.

37 ára Pato tekur sér sæti í stjórn félagsins en það eru tæp tvö ár liðin síðan hann lagði fótboltaskóna á hilluna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.