Fotbolti.net
01.10.26 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Fyrsta HM félagiða kvenna í Bandaríkjunum

SoFi Stadium Sofi leikvangurinn í Los Angeles.

SoFi Stadium Sofi leikvangurinn í Los Angeles.

Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Guardian greinir frá því að fyrsta HM félagsliða í kvennaflokki verði að öllum líkindum haldið í Bandaríkjunum. Los Angeles og San Diego séu líklegustu gestgjafaborgirnar.
Katar hafði einnig verið í viðræðum við FIFA en nú er allt útlit að þessi nítján liða keppni verði í Bandaríkjunum.

HM félagsliða kvenna á að fara fram í fyrsta sinn í janúar 2028. HM landsliða kvenna verður á næsta ári og Ólympíuleikarnir sumarið 2028.

FIFA telur það hjálpa að halda HM félagsliða í Bandaríkjunum þar sem HM landsliða mun fara fram þar 2031 en það mót verður einnig í Mexíkó, Kosta Ríka og Jamaíka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.