01.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna í dag - Inter fer til Austurríkis

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: HB Köge

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það koma tvö Íslendingalið við sögu í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í dag.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur í stórveldi Inter heimsækja Austria Vienna til Vínarborgar og eru í leit að sínum öðrum sigri eftir að hafa lagt BK Häcken, Evrópubikarmeistarana frá því í fyrra, að velli í fyrstu umferð.
Austria Vienna byrjaði keppnina á afar naumu tapi á útivelli gegn Chelsea þar sem þær austurrísku komust nálægt því að skora. Þær gætu því reynst erfiður andstæðingur fyrir Íslendingaliðið.
Emelía Óskarsdóttir gæti þá komið við sögu þegar Danmerkurmeistarar HB Köge fá svissnesku meistarana í liði Servette í heimsókn.
Köge tapaði naumlega á útivelli gegn Arsenal í fyrstu umferð á meðan Servette fékk átta mörk á sig á heimavelli gegn Lyon.
Tveir slagir fara svo fram í kvöld þegar Manchester City tekur á móti Real Madrid annars vegar og PSG fær OH Leuven í heimsókn frá Belgíu.
Leikir dagsins
16:45 Austria Vienna - Inter
16:45 HB Köge - Servette
19:00 Man City - Real Madrid
19:00 PSG - Leuven