01.11.26 - 16:28
Brynjar Ingi Erluson
Arteta: Viljum koma á Anfield og klára dæmið

Mikel Arteta

Mynd: EPA

Tzolis byrjar sinn fyrsta leik í rúman mánuð

Mynd: EPA

Mikel Arteta

Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Englandsmeistara Arsenal, vonast til þess að liðið bindi í dag enda á langa bið eftir deildarsigri gegn Liverpool á Anfield.

TENGT EFNI
Byrjunarlið Liverpool og Arsenal: Stór ákvörðun hjá Iraola - Tzolis snýr aftur
Klukkan 16:30 hefst stórleikur Liverpool og Arsenal á Anfield, en fjórtán ár eru liðin síðan Arsenal vann síðast deildarleik á þessum velli.
Liverpool vann 1-0 sigur í viðureign liðanna á Anfield á síðasta tímabili þökk sé glæsilegu aukaspyrnumarki Dominik Szoboszlai, en Arteta segir að það séu litlu augnablikin sem ráði úrslitum í svona stórleikjum.
„Við höfum verið nálægt því, en það eru ákveðin augnablik sem ráða úrslitum í svona leikjum. Maður verður að gera nákvæmlega réttu hlutina á þessum augnablikum til að vinna á þessum velli. Nú verður að koma að því.“
Á síðasta tímabili mætti Arteta Liverpool undir stjórn Arne Slot, en hann býst við töluvert öðruvísi leik gegn liði Andoni Iraola.
„Allir stjórar hafa sínar eigin lausnir og nálganir, en Andoni er mjög skýr í því sem hann vill gera. Við búumst við öðruvísi leik. Þetta er lið sem sækir mjög beint fram völlinn og hefur alla burði til að skapa algjöra óreiðu úr nánast hvaða stöðu sem er.“
Christos Tzolis er snúinn aftur í byrjunarlið Arsenal eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðasta mánuðinn, en Arteta segir að hann hafi þurft að taka nokkrar ákvarðanir með álagið á leikmönnum í huga.
„Við glímdum við nokkur vandamál eftir leikinn á þriðjudaginn og þurfum að vera skynsamir þegar kemur að því að stýra spilatíma leikmannanna í dag. Aðstæðurnar og staðan neyddu mig til að taka ákveðnar ákvarðanir.“
Arteta var að lokum spurður hversu stórt tækifæri þetta væri fyrir Arsenal að binda enda á langa bið eftir deildarsigri á Anfield.
„Þetta er tækifæri, áskorun og verkefni. Við viljum koma á Anfield og klára dæmið,“ sagði Arteta fyrir leik.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |