Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 01. desember 2012 08:00
Elvar Geir Magnússon
Samningamál Sterling mikið til umfjöllunar
Mynd: Getty Images
Daily Mail segir að Manchester City fylgist spennt með framvindu mála varðandi samningastöðu Raheem Sterling hjá Liverpool.

Ráðgjafar leikmannsins unga eru víst ekki sáttir við ummæli Brendan Rodgers, stjóra Liverpool, sem sagði í gær að það yrði mjög heimskulegt af Sterling ef hann myndi ekki skrifa undir nýjan samning við félagið.

18 mánuðir eru eftir af núverandi samningi og hafa ráðgjafarnir fundað með Ian Ayre, framkvæmdastjóra Liverpool, í tvígang en formlegt samningstilboð hefur ekki verið lagt fram.

Sterling er eitt mesta efnið í ensku úrvalsdeildinni í dag og ljóst að Liverpool mun leggja mikið kapp á að binda hann hjá sér.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner