Fotbolti.net
21.09.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Betra að vera í Mónakó en Chelsea"

„Betra að vera í Mónakó en Chelsea"
Canon

Mynd: EPA

Lamine Camara, miðjumaður Mónakó, var mikið í umræðunni eftir félagaskiptagluggan í sumar.

Mónakó samþykkti 47 milljón punda tilboð Chelsea í þennan 22 ára gamla Senegala á lokadegi gluggans en Mónakó bakkaði út á síðustu stundu.
Camara hugsar ekki lengur um Chelsea
TENGT EFNI

Camara hugsar ekki lengur um Chelsea

Denis Zakaria, liðsfélagi Camara, og fyrrum leikmaður Chelsea, segir að það hafi verið gott fyrir hann að fara ekki til Lundúna.

„Chelsea? Ég sagði við hann að það væri gott en það er betra að vera hér en í Chelsea," sagði Zakaria.

„Ég þekki leikmanninn og manneskjuna sem hann er. Hann er mjög mikill fagmaður. Ég tel að þetta hafi gefið honum meiri styrk. Hann var stórkostlegur gegn Lens."

Zakaria var á láni hjá Chelsea frá Juventus tímabilið 2022/23 og spilaði sjö leiki undir stjórn þriggja stjóra. Liðið hafnaði í 12. sæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.