Fotbolti.net
21.09.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man Utd fylgist með norsku ungstirni - JJ Gabriel ræddi við Barcelona

Man Utd fylgist með norsku ungstirni - JJ Gabriel ræddi við Barcelona
Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Hinn 15 ára gamli JJ Gabriel, leikmaður Man Utd, hefur verið mikið í fréttum undanfarið en hann vill fara frá félaginu. TalkSPORT greinir frá því að Man Utd sé að fylgjast með norsku undrabarni sem mögulegan arftaka Gabriel.
Sá heitir Gabriel Rajkovic en hann er aðeins 15 ára gamall og hefur spilað 15 leiki, skorað þrjú mörk og lagt upp eitt fyrir aðallið Valerenga.

Miðlar í Noregi segja frá því að Barcelona hafi sent njósnara til Noregs til að fylgjast með honum. Þá eru Arsenal og Chelsea einnig áhugasöm.

Barcelona hefur einnig mikinn áhuga á JJ Gabriel en hann fundaði með spænska félaginu í síðustu viku. Barcelona og Real Madrid eru talin vera líklegastu kostirnir fyrir Gabriel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.