Það er óhætt að segja að frumraun Hollendingsins Noa Lang með Ajax hafi verið frábær.
Noa Lang er 20 ára gamall og var eins og fyrr segir að spila sinn fyrsta leik með Ajax í dag.
Ajax mætti Twente og hafði þar betur með fimm mörkum gegn tveimur mörkum heimamanna, þeir lentu þó í vandræðum þar sem Twente náði tveggja marka forystu.
Lang skoraði fyrstu tvö mörk Ajax, Huntelaar skoraði þriðja mark liðsins áður en Lang bætti við þriðja marki sínu og fjórða marki Ajax á 70. mínútu.
Þetta er í fyrsta skipti í 60 ár sem leikmaður Ajax skorar þrennu í frumraun sinni.
Ajax youngster Noa Lang has become the first player to score a hat-trick on their league debut for the club in 60 years.
-- BBC Sport (@BBCSport) December 1, 2019
More ? https://t.co/ALOsFfRaBE pic.twitter.com/l79YJMpBHM
Athugasemdir