Fotbolti.net
22.09.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Van Hecke gagnrýndi Robertson - „Gat ekki versnað"

Andy Robertson

Andy Robertson

Canon

Mynd: EPA

Jan Paul van Hecke, varnarmaður Tottenham, var ekki sáttur með liðsfélaga sinn, Andy Robertson, í 3-2 tapi gegn Aston Villa um helgina.
Robertson gerði sig sekan um mistök í blálok fyrri hálfleiks þegar Johan Manzambi kom Aston Villa yfir. Tottenham var manni færri á þeim tímapunkti þar sem Micky van de Ven var að fá aðhlynningu utan valllar.

Robertson bjargaði því að boltinn fór í horn og hann barst til leikmanns Aston Villa og endaði með því að Manzambi skoraði. Van Hecke er í landsliðsverkefni með Hollandi en hann tjáði sig við hollenska miðilinn Algemeen Dagblad.

„Þetta gat ekki versnað. Við vorum manni færri. Þá er sniðugra að sparka boltanum út af svo við getum beðið þangað til Micky komi aftur inn á," sagði Van Hecke.

Van Hecke var spurður út í frammistöðu Tottenham á tímabilinu en liðið er á botninum með aðeins tvö stig.

„Við ímynduðum okkur að þetta yrði öðruvísi. Það er óásættanlegt hvernig við spilum og fáum á okkur mörk," sagði Van Hecke.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.