22.09.26 - 08:06
Elvar Geir Magnússon
Garnacho aðeins fengið að spila hálftíma

Aleljandro Garnacho í treyju Aston Villa.

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, er greinilega ekki sannfærður um argentínska kantmanninn Alejandro Garnacho.
Argentínumaðurinn, sem kom upp úr unglingastarfi Manchester United, hefur aðeins fengið að spila 31 mínútu fyrir Villa og var þeim spiltíma dreift á þrjá leiki þar sem hann kom inn af bekknum.
Fimmtán mínútur gegn Hull er stærsta tækifærið sem hann hefur fengið hingað til.

TENGT EFNI
Emery: Garnacho þarf tíma
Garnacho skoraði eitt mark og var með fjórar stoðsendingar í 24 úrvalsdeildarleikjum fyrir Chelsea á síðasta tímabili og stóð ekki undir væntingum eftir að hafa verið keyptur á 40 milljónir punda frá Manchester United. Honum var því hleypt á lán til Villa.
Það er bara mánuður liðinn af þessu tímabili en Garnacho gæti þegar verið kominn á krossgötur á Villa Park.
„Hann þarf að halda áfram að leggja á sig vinnu á æfingasvæðinu, þegar hann fær að spila er mikilvægt að hann standi sig vel. Hann er að þróast en það eru aðrir leikmenn á undan honum," segir Emery um Garnacho.
Staða Garnacho þykir minna mikið á Harvey Elliott sem kom á láni frá Liverpool á síðasta tímabili en spilaði aðeins fjóra deildarleiki með Villa. Emery fannst Elliott ekki nægilega góður og tók þá ákvörðun frekar snemma að hann yrði ekki keyptur alfarið.

Mynd: Aston Villa