Fotbolti.net
22.09.26 - 08:37
Elvar Geir Magnússon

Mótmæli við hótel Heimis og írska liðsins

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands.

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands.

Canon

Mynd: EPA

Það er farið að hitna enn frekar í kolunum í aðdragandanum að leikjum Heimis Hallgrímssonar og lærisveina í írska landsliðinu gegn Ísrael í Þjóðadeildinni.

Hátt í 200 mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan liðshótel Írlands í gærkvöldi og kröfðust þess að Írland myndi ekki spila við Ísrael. Írskum og palestínskum fánum var veifað.

Yfir 160 írskir íþróttamenn skrifuðu undir opinberan undirskriftarlista þar sem krafist var að írska landsliðið myndi sniðganga leikina gegn Ísrael.

Eins og Fótbolti.net fjallaði um í gær fóru ummæli Heimis, þar sem hann sagði ísraelska liðið vera að spila gegn þjóðarmorði, mjög illa ofan í ísraelska fótboltasambandið sem sendi frá sér harðorða yfirlýsingu.
„Heimska og hræsni“ - Heimir fær að heyra það frá ísraelska sambandinu
TENGT EFNI

„Heimska og hræsni“ - Heimir fær að heyra það frá ísraelska sambandinu

Írska landsliðið mætir Ísrael 27. september og verður spilað í Ungverjalandi, seinni viðureign þjóðanna verður í Serbíu þann 4. október.

Fréttainnslag um mótmælin:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.