22.09.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeild kvenna í dag - Glódís mætir Englandsmeisturunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Meistaradeild kvenna hefst í dag en fimm leikir eru á dagskrá. Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Bayern fá Man City í heimsókn á nýjan heimavöll sem verður vígður í dag.
Man City varð Englandsmeistari á síðustu leiktíð en Chelsea vann deildina síðustu sex ár á undan.
Þá er Íslendingaslagur á Ítalíu þar sem Inter fær Hacken í heimsókn. Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir spila með Inter og Thelma Karen Pálmadóttir er leikmaður Hacken.
Koge heimsækir Arsenal. Emelía Óskarsdóttir er leikmaður Koge. Arsenal vann Meistaradeildina fyrir tveimur árum.

þriðjudagur 22. september
16:45 Bayern W - Manchester City W
16:45 Inter W - Hacken W
19:00 Arsenal W - Koge W
19:00 Juventus W - SL Benfica W
19:00 Real Madrid W - PSG W
16:45 Bayern W - Manchester City W
16:45 Inter W - Hacken W
19:00 Arsenal W - Koge W
19:00 Juventus W - SL Benfica W
19:00 Real Madrid W - PSG W