Hvernig nýta liðin í Bestu þriggja vikna fríið?

Jói Kalli ætlar að láta FH-inga æfa vel í landsleikjahléinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skagamenn fá vikulangt frí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þriggja vikna frí það síðasta sem Eiður óskaði sér.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjálpar tengdadótturinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar fá að hvíla sig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórsarar særðir en klárir.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

FH-ingar ætla að æfa vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jói Kalli ætlar að láta FH-inga æfa vel í landsleikjahléinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir nýlokna umferð spurði Fótbolti.net þjálfara sjö liða í deildinni um hvernig þeir skyldu hátta komandi vikum.
Flestir voru sammála um að fríið væri full langt en liðin fara þó mismunandi leiðir að því hvernig skyldi æfa í fríinu.
Lítið er undir hjá Keflvíkingum sem eru í efri hlutanum en eiga ekki möguleika á að ná Evrópusæti.
„Við tökum bara viku í frí svo komum við aftur saman og æfum og höfum svolítið gaman og tökum svo viku í undirbúning,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga, aðspurður út í fríið.
Rúnar hjálpar tengdadótturinni
Rúnar Kristinsson gefur sínum mönnum vikulangt frí en Fram er í baráttu við KR um 2. sæti deildarinnar.
„Þó menn fái vikufrí núna þá komum við til baka og æfum í tvær góðar vikur og reynum að undirbúa okkur sem best fyrir næsta leik,“ sagði Rúnar og var sjálfur spurður hvernig hann ætlaði að nýta fríið.
„Ég ætla að hjálpa tengdadóttur minni svo að sonur minn geti tekið þátt í þessu landsliðsverkefni. Þannig að ég er bara að fara að hitta barnabörnin mín og sjá um þau í einhverja fimm til sex daga til þess að sonur minn geti notið þess að vera með landsliðinu,“ sagði Rúnar.
Þórsarar særðir en klárir
Sigurður Heiðar Höskuldsson segir Þórsara ætla að mæta dýrvitlausa til leiks eftir landsleikjahléið en ræddi ekkert um hvort hann ætli að gefa frí.
„Við förum særðir inn í fríið en mætum svo sannarlega klárir. Særð dýr eru hættulegustu dýrin og við mætum dýrvitlausir eftir pásu,“ sagði Sigurður.
Blikar fá að hvíla sig
Það er lítið undir hjá Blikum sem hafa þegar tryggt sér Evrópusæti á næstu leiktíð með bikarsigrinum.
„Það má segja að þetta sé svolítið langur tími. Þetta er bara partur af þessu, það er ekki hægt að kvarta yfir því. Við njótum góðs af því, náum aðeins að hvíla okkur og keyra okkur upp fyrir síðustu þrjá leikina," sagði Ólafur Ingi Skúlason.
Ræðir ekkert um frí
Jóhannes Karl Guðjónsson fer aðra leið með FH og ræðir ekkert um hvort hann ætli að gefa sínum mönnum frí. FH er í 9. sæti deildarinnar, sex stigum frá fallsæti.
„Við þurfum að æfa vel. Passa upp á okkur. Við höfum verið að æfa vel fyrir undanfarna leiki. Við þurfum að halda áfram og halda okkur í standi. Við munum æfa í skorpum en ansi vel og sjá til þess að við komum inn í fyrsta leik eftir landsleikjahlé í toppstandi,“ sagði Jói Kalli eftir sannfærandi sigur á Stjörnunni.
Skagamenn í rúmlega vikufrí
Lárus Orri gefur sínum mönnum vikulangt frí, en liðið getur í besta falli endað í 4. sæti.
„Við förum í langt og gott frí núna. Rúmlega vikufrí hjá leikmönnum, svo koma þeir til baka og við förum að undirbúa okkur fyrir Víkingsleikinn,“ sagði Lárus Orri eftir sigur á Breiðabliki um helgina.
Síðasta sem Eiður óskaði sér
KA vann 3-0 sigur á erkifjendunum í Þór í síðasta leik fyrir hlé. Eiður Smári Guðjohnsen stóð ekki á svörum er hann var spurður út í fríið langa.
„Það er sennilega það síðasta sem ég myndi óska mér að fara í þriggja vikna frí núna,“ sagði Eiður.

Skagamenn fá vikulangt frí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þriggja vikna frí það síðasta sem Eiður óskaði sér.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjálpar tengdadótturinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar fá að hvíla sig.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórsarar særðir en klárir.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

FH-ingar ætla að æfa vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
