Fotbolti.net
22.09.26 - 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Luis Díaz: Reyni að komast ofar á Ballon d'Or listann

Luis Díaz: Reyni að komast ofar á Ballon d'Or listann
Canon

Mynd: EPA

Kólumbíumaðurinn Luis Díaz, leikmaður Bayern Munchen, er mjög stoltur af því að vera tilnefndur til Ballon d'Or verðlaunana. Hann er einn af þrjátíu leikmönnum sem koma til greina.

Díaz átti frábært tímabil með Bayern en liðið vann bæði þýsku deildina og bikarinn. Díaz spilaði alls 66 leiki á síðustu leiktíð, skoraði 30 mörk og lagði upp 23.
„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig. Það fá ekki allir það tækifæri að vera meðal þeirra þrjátíu bestu í heimi. Það er frábært afrek. Ég hef haft þann heiður tvisvar og það er mjög góður árangur fyrir mig og minn feril," sagði Díaz.

„Ég mun reyna að komast ofar á listann í hvert skipti. Við erum allir að leggja hart að okkur sem lið til að bæta okkur og eiga betra tímabil. Og svo vinna eins mikið og hægt er með þessu félagi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.