Fotbolti.net
22.09.26 - 10:47
Kári Snorrason

Hvernig rígurinn margfaldaðist á Meistaravöllum

Heitt í kolunum.

Heitt í kolunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur varð Íslandsmeistari er liðið lagði KR 2-1 að velli á Meistaravöllum á laugardaginn var.

Óhætt er að segja að heitt hafi verið í kolunum á Meistaravöllum. Rígur KR og Víkings hefur magnast heldur betur undanfarnar vikur og virðist nú vera að taka við af hinum mikla rígi Breiðabliks og Víkings sem hefur sett svip sinn á íslenskan fótbolta undanfarin ár.

Leikur liðanna á Meistaravöllum á laugardaginn virðist hafa markað hápunkt rígsins hingað til. Fótbolti.net tók saman átta atriði sem áttu þátt í að krydda hann enn frekar.
Lestu um leikinn: KR 1 - 2 Víkingur R.
Haltraði að titlinum
Stígur Diljan Þórðarson kom Víkingum yfir um miðbik síðari hálfleiks og fór þar með langt með að tryggja Víkingi Íslandsmeistaratitilinn.

Hann fagnaði með því að þykjast haltra og gerði þar lítið úr ummælum Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR, sem sagði í upphafi mánaðar að Víkingar væru að haltra í átt að Íslandsmeistaratitlinum.

Rauðu spjöldin fimm
Undir lok leiks var Sigurður Hjörtur í yfirvinnu og gaf hann fimm rauð spjöld á tíu mínútum. Farsinn byrjaði með broti Daníels Hafsteinssonar og því næst fékk Sveinn Margeir Hauksson umdeilt beint rautt spjald.

Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings, og Hajrudin Cardaklija, markvarðarþjálfari Víkings, bættust því næst í hópinn og Víkingar þar með búnir að fá fjögur rauð spjöld á sjö mínútum, sem hlýtur að vera einsdæmi hérlendis.

Hrafn Tómasson var eini KR-ingurinn til þess að vera rekinn af velli þegar hann fékk sitt seinna gula spjald á níundu mínútu í uppbótartíma.

Læti í leikmannagöngunum
Það var enn hiti í mönnum þegar Sigurður Hjörtur flautaði til leiksloka. Eftir leik ætlaði allt um koll að keyra í leikmannagöngunum eftir leik. Sagan segir að Víkingar væru að bera bjór inn í klefa til þess að fagna Íslandsmeistaratitlinum.

KR-ingar voru ekki hrifnir af því og höfðu bannað þeim það. Uppi varð fótur og fit og munu stimpingar hafa orðið á milli manna.

Brotinn
Aron Sigurðarson hefur farið mikinn í viðtölum undanfarin misseri og ítrekað lýst andúð sinni á Víkingum.

Eftir að Víkingar tryggðu sér titilinn birti Nikolaj Hansen, sóknarmaður liðsins, breytta mynd af Aroni á samfélagsmiðlum.

Aron situr þar fyrir í bol frá vörumerkinu Unbroken og heldur á hylki frá fyrirtækinu. Búið hafði verið að breyta merkingunni þannig að á honum stóð einfaldlega „Broken“.

Mynd: Instagram


Settu upp myndavélar eftir skemmdaverkin
Liðin mættust í upphafi mánaðarins, skömmu fyrir lok hefðbundinnar deildarkeppni. Mikil eftirvænting ríkti fyrir viðureigninni og í aðdraganda hennar máluðu stuðningsmenn Víkings Meistaravelli rauða.

Fyrir leikinn á laugardaginn voru svo settar upp myndavélar á Meistaravöllum. Pálmi Rafn Pálmason, framkvæmdastjóri KR, sagði í samtali við Vísi að uppsetning þeirra væri ekki bein afleiðing af skemmdarverkunum. Tímasetningin gefur þó rígnum enn meira krydd.

Krókur á móti bragði
„Það verður bara fárviðri þegar þessi lið mætast og ég ætla að vona að það verði spólað upp á næsta ári ennþá meira, það verði meiri söngvar sungnir um mig og fleiri og það verði allt geðveikt,“ sagði Óskar í samtali við Sýn eftir leik.

Stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra og mögulega hafa báðir hópar gengið of langt í söngvum sínum um andstæðingana.

Þegar liðin mættust á Meistaravöllum fyrir tvískiptingu deildarinnar var lögregla kölluð til að fjarlægja trommur stuðningsmanna Víkings, enda eru trommur ekki leyfðar á vellinum.

Það féll illa í kramið hjá Víkingum sem létu óánægju sína í ljós á samfélagsmiðlum eftir leikinn.

Á laugardaginn fundu hugmyndaríkir stuðningsmenn Víkings hins vegar leið fram hjá trommubanninu. Þeir smygluðu þráðlausum Bluetooth-hátalara inn á völlinn og tengdu hann við aðila sem stóð fyrir utan Meistaravelli með trommu og síma. Víkingar gátu því trommað á pöllunum án þess að vera með slíka í stúkunni.

Víkingar vökvaðir
Í miðjum fagnaðarlátum Víkinga eftir leik fór vökvunarkerfi vallarins í gang og voru leikmenn, stuðningsmenn og starfsmenn Víkings bleyttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Engan smekk fyrir Víkingum
Óskar hefur eldað grátt silfur við Víkinga undanfarin ár, ekki síst þegar hann stýrði Breiðabliki. Rígur Breiðabliks og Víkings hefur verið sá eftirminnilegasti í íslenskum fótbolta undanfarin ár, en nú virðist sem rígur KR og Víkings sé að taka við.

Í viðtölum eftir leik sagðist Óskar ekki hafa neinn smekk fyrir Víkingum innan sem utan vallar. „Ég hef hatað Víkingana mest síðan þeir unnu fyrsta titilinn sinn 2021. Þeir eru grobbnir og ömurlega lélegir sigurvegarar,“ sagði Óskar m.a. í samtali við mbl.is eftir leik.
Haltrar í fögnuðinum.

Haltrar í fögnuðinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skýtur á ummæli Arons Sigurðarsonar.

Skýtur á ummæli Arons Sigurðarsonar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fimm rauð spjöld á tíu mínútum.

Fimm rauð spjöld á tíu mínútum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar fengu tvö rauð á bekkinn.

Víkingar fengu tvö rauð á bekkinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sagan segir að KR-ingar hafi bannað Víkingum að bera bjór inn í klefa.

Sagan segir að KR-ingar hafi bannað Víkingum að bera bjór inn í klefa.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skaut á Aron Sigurðarson á Instagram eftir leik.

Skaut á Aron Sigurðarson á Instagram eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Settu upp myndavélar eftir skemmdarverk Víkinga.

Settu upp myndavélar eftir skemmdarverk Víkinga.

Canon

Mynd: Hilmar Þór

Máluðu Meistaravelli í skjóli nætur.

Máluðu Meistaravelli í skjóli nætur.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Tromman var tekin af Víkingum í upphafi mánaðar.

Tromman var tekin af Víkingum í upphafi mánaðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berserkir létu heyra vel í sér.

Berserkir létu heyra vel í sér.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar ekki hrifinn af Víkingum.

Óskar ekki hrifinn af Víkingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur eldað grátt silfur við Víkinga undanfarin ár.

Hefur eldað grátt silfur við Víkinga undanfarin ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.