22.09.26 - 10:36
Elvar Geir Magnússon
Vaknar upp með andfælum eftir slysið

Bifreiðin gjöreyðilagðist.

Mynd: Samsett

Michail Antonio.

Mynd: EPA

Bifreiðin gjöreyðilagðist.

Mynd: Samsett
Michail Antonio man ekkert eftir bílslysinu sem hann lenti í 2024 en segist vakna upp með martraðir á nóttunni reglulega eftir það.
Þessi 36 ára fyrrum sóknarmaður West Ham slasaðist þegar Ferrari bifreið hans lenti á tré í desemebermánuði fyrir tveimur árum. Hann slasaðist á fæti en bíllinn gjöreyðilagðist og ótrúlegt að ekki fór verr.
Óttast var að ferill Antonio væri á enda en hann gekk í raðir Watford á frjálsri sölu fyrr í þessum mánuði, eftir stuttan tíma hjá Al-Sailiya í Katar. Hann hefur ekki enn spilað sínar fyrstu mínútur hjá Watford.

TENGT EFNI
Michail Antonio til Watford (Staðfest)
„Ég er að keyra á veginum og svo sveigir sendibíll fyrir framan mig, og ég sveig frá sendibílnum, svo hrökk ég við. Ég veit ekki hvort það er satt eða ekki því þetta gæti bara verið martröð. Þess vegna hef ég ekki sagt neinum öðrum frá þessu," segir Antonio í viðtali við Telegraph þar sem hann rifjar upp slysið.
„Ég man ekki eftir að hafa verið á sjúkrahúsinu. Fjölskyldan mín sem segir mér hvernig mér leið þegar ég var þar. Það er stundum svo erfitt að tala við þau því þau hafa svo skýrar minningar um það, en ég ekki.“
Antonio leitaði sér sálfræðiaðstoðar eftir slysið og segir að það hafi hjálpað sér gríðarlega.