Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 01. desember 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM búið hjá Nuno Mendes - Frá í tvo mánuði
Mynd: EPA

Fabrizio Romano greindi frá því á Twitter að Nuno Mendes muni ekki spila meira á HM eftir að hafa meiðst í leik Portúgal gegn Úrúgvæ á mánudaginn.


Mendes meiddist á læri og mun verða frá næstu tvo mánuðina samkvæmt Romano. Hann segir að leikmaðurinn muni þó vera áfram í Katar en læknateymi frá PSG muni fara þangað og kíkja á hann.

Mendes fór af velli eftir 42 mínútna leik í 2. umferð en hann kom ekkert við sögu í fyrstu umferðinni í 3-2 sigri gegn Gana.

Hann er aðeinst tvítugur og á 18 leiki að baki með portúgalska landsliðinu.


Athugasemdir
banner
banner