Enski vængmaðurinn Dwight McNeil mun ekki ganga í raðir bikarmeistara Crystal Palace frá Everton en þetta segir Sky Sports í kvöld.
Crystal Palace lagði fram tilboð í McNeil undir lok gluggans sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda.
Palace hefði þá fengið Englendinginn á láni út tímabilið með kaupskyldu.
Everton samþykkti tilboðið en aðilunum tókst ekki að ganga frá pappírsvinnunni fyrir frestinn sem var til 21:00 og er því ljóst að hann verður áfram í herbúðum Everton.
McNeil er 26 ára gamall og komið við sögu í 18 leikjum með Everton á tímabilinu, en ekki átt fast sæti í liðinu undir stjórn David Moyes.
Everton er í 10. sæti með 34 stig, sex stigum frá Evrópusæti.
Athugasemdir



