Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. mars 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Man Utd bætir við starfsfólki til að finna leikmenn
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar að ráða átta ráðgjafa til félagsins sem munu hjálp til við að finna skotmörk á félagaskiptamarkaðinum.

Manchester United var í vandræðum með að finna framherja í janúar en á endanum kom Odion Ighalo á láni frá Kína.

The Athletic segir að Manchester United ætli núna að ráða inn starfsmenn sem munu greina tölur hjá leikmönnum út um alla Evrópu og vera í samstarfi við akademíu United og læknalið félagsins.

Liverpool og Manchester City eru bæði með svipuð teymi en þau hjálpa til við að finna leikmenn og skoða ítarlega þá leikmenn sem koma til greina á félagaskiptamarkaðinum.

Manchester United er með starfsviðtöl þessa dagana en félagið vonast til að með ráðningum á þessum greinaraðilum muni ganga betur á félagaskiptamarkaðinum á næstunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner