Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 02. apríl 2021 07:00
Victor Pálsson
Allardyce vill halda Gallagher - Betra en að snúa aftur til Chelsea
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce vonast til að halda miðjumanninum Conor Callagher á næsta tímabili ef West Brom heldur sér í ensku úrvalsdeildinni.

Allardyce segir sjálfur frá þessu en Gallagher er í láni hjá WBA frá Chelsea og fær reglulega að spila.

West Brom er þó átta stigum frá öruggu sæti og eru ekki miklar líkur á að liðið spili á meðal þeirra bestu næsta vetur.

„Ef við höldum okkur í ensku úrvalsdeildinni þá vona ég að hann verði hér á næstu leiktíð frekar en Chelsea," sagði Allardyce.

„Það væri betra fyrir hann að spila með okkur frekar en að fara í samkeppnina hjá Chelsea. Ég heyrði hversu góður hann var áður en ég kom."
Athugasemdir
banner
banner