14.09.26 - 22:21
Magnús Atlason
Stígur um fyrra markið: Var að skíta á mig
Auglýsing

Stígur Diljan Þórðarson, leikmaður Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur og Keflavík áttust við í 1. umferð Bestu deildarinnar eftir skiptingu fyrr í kvöld. Víkingar unnu þá afar sannfærandi 4-1 sigur. Stígur Diljan Þórðarson skoraði tvö í dag en Fótbolti.net náði tali af honum eftir leik.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 1 Keflavík
"Rosalega sáttur með sigurinn, gerir mikið fyrir okkur þessi sigur, fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni. Bara ekkert smá vel."
Stígur potaði boltanum í netið eftir skot Valdimars Þórs Ingimundarsonar sem var á leið í netið. Það var rangstöðulykt af markinu. "Varstu hræddur um rangstöðu?"
"Já, ég var bara að skíta á mig, ég hélt ég hafi tekið Ronaldo Nani mómentið fyrst en svo fattaði ég að ég var ekkert rangstæður svo ég var ekkert að pæla í þessu, mark er mark."
Stígur bætti öðru marki sínu við í upphafi síðari hálfleiks. "Vildirðu þrennu?"
"Já auðvitað vill maður þrennuna en maður þarf að gera rétt inn á vellinum og taka réttar ákvarðanir en auðvitað vildi maður þrennuna."
Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.