Fotbolti.net
14.09.26 - 21:46
Ívan Guðjón Baldursson

„Bruno Fernandes olli mér vonbrigðum"

„Bruno Fernandes olli mér vonbrigðum"
Canon

Mynd: EPA

Fótboltasérfræðingurinn Jamie Carragher hefur tjáð sig um afar umdeilt atvik sem átti sér stað í nágrannaslag Manchester-liðanna í gær.
Maresca: Bruno Fernandes átti líka að fá rautt
TENGT EFNI

Maresca: Bruno Fernandes átti líka að fá rautt

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, braut á Phil Foden og sparkaði í hann meðan hann lá í jörðinni. Foden brást illa við og ýtti báðum fótunum sínum í maga Bruno, sem henti sér í jörðina og byrjaði að velta sér í hringi til að fiska andstæðing sinn af velli.

Roy Keane, Micah Richards og fleiri sparkspekingar hafa gagnrýnt Bruno fyrir sinn þátt í atvikinu og tekur Carragher undir.

„Að mínu mati eiga þeir báðir að fá sömu refsingu. Mér finnst gult spjald á báða vera nóg. Foden setur fótinn í hann en fóturinn er nú þegar í loftinu, það er ekki eins og hann sé að sparka í Bruno," sagði Carragher.

„Mér finnst Bruno vera sökudólgurinn í þessu máli. Hann brýtur á Foden, sparkar í hann og rúllar sér svo á jörðinni eftir að hafa varla orðið fyrir snertingu bara til að reyna að fiska mann af velli. Mér finnst þetta lélegt hjá Bruno, þetta lítur illa út fyrir hann.

„Það eru hlutir í fótbolta sem engum líkar við að sjá, mér líkar ekki við að sjá leikmenn velta sér um jörðina til að reyna að fiska andstæðinga af velli. Fjölmiðlar verða að gagnrýna svona hegðun, mér finnst alltof mikil áhersla vera sett á viðbrögð Foden í þessu máli þegar hún ætti að vera sett á viðbrögð Bruno. Við verðum að gera eitthvað til að stöðva þessa þróun, eins og staðan er í dag þá eru leikmenn hvattir til að þykjast meiða sig til að fá andstæðinga rekna af velli."


Carragher gagnrýndi einnig Michael Oliver dómara fyrir að vera alltof fljótur að taka ákvörðun. Það hefði verið gáfulegra að gefa Foden gult spjald og leyfa VAR-teyminu að skerast í leikinn til að breyta því í rautt spjald.

„Hann var alltof fljótur að taka þessa ákvörðun, þegar maður skoðar atvikið frá dómaramyndavélinni þá er engin leið til að sjá nákvæmlega hvað gerist. Samt tekur hann strax ákvörðun um að gefa rautt spjald. Ég veit ekki hvernig hann gat séð þetta. Stundum eru dómarar alltof uppteknir af því að vera fljótir að taka ákvarðanir og reiða sig ekki á VAR kerfið, en til hvers? Við erum með VAR, svona atvik eru tilvalin fyrir dómara til þess að taka sér nokkrar sekúndur og biðja VAR-teymið um ráðleggingu."

Sjáðu það helsta úr Manchesterslagnum: Foden sá rautt
TENGT EFNI

Sjáðu það helsta úr Manchesterslagnum: Foden sá rautt

„Bruno Fernandes olli mér vonbrigðum"
Canon

Mynd: EPA

„Bruno Fernandes olli mér vonbrigðum"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.