Fotbolti.net
14.09.26 - 20:54
Ívan Guðjón Baldursson

England: Leeds fór illa með Newcastle

England: Leeds fór illa með Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Leeds 4 - 1 Newcastle
1-0 Lewis Miley ('32 , sjálfsmark)
2-0 Jayden Bogle ('34 )
3-0 Dominic Calvert-Lewin ('45 )
4-0 Noah Okafor ('59 )
4-1 Bazoumana Toure ('90)
Leeds United tók á móti Newcastle United í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og sýndu lærlingar Daniel Farke frábæra takta.

Heimamenn í Leeds voru sterkari aðilinn og náðu forystunni á 32. mínútu, þegar Lewis Miley varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir að hafa fengið skot frá Ao Tanaka í sig. Boltinn breytti um stefnu af tveimur mismunandi varnarmönnum og endaði í netinu, þar sem Lukas Hornicek kom engum vörnum við.

Skömmu síðar tvöfaldaði Jayden Bogle forystuna með skalla eftir fyrirgjöf. Bogle vann boltann hátt uppi á vellinum eftir skelfilega sendingu frá Sean Steur, gaf hann frá sér og spretti inn í teig þar sem hann skoraði. Dominic Calvert-Lewin hélt hann hefði skorað og fagnaði markinu sjálfur, en skallinn hans fór af Bogle og í netið þar sem þeir hoppuðu upp í sama bolta með stuttu bili á milli hvors annars. Calvert-Lewin stökk hæst og stangaði boltann í kollinn á Bogle, þaðan sem hann fór í netið.

Undir lok fyrri hálfleiks setti Calvert-Lewin svo þriðja mark heimamanna eftir laglegt einstaklingsframtak. Staðan var 3-0 í leikhlé.

Noah Okafor innsiglaði sigur Leeds með fjórða markinu á 59. mínútu, sem kom eftir langt innkast. Boltinn datt fyrir Okafor sem skoraði með viðstöðulausu vinstrifótarskoti.

Leikmenn Newcastle gáfust ekki upp og reyndu að minnka muninn. Þeim tókst það loks á lokamínútunum þegar tvítugur Bazoumana Touré setti boltann í netið eftir lága fyrirgjöf Tino Livramento.

Lokatölur 4-1. Leeds er með 8 stig eftir 4 umferðir á meðan Newcastle situr eftir með 5 stig.
England: Leeds fór illa með Newcastle
Canon

Mynd: EPA

England: Leeds fór illa með Newcastle
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.