14.09.26 - 22:09
Magnús Atlason
Haraldur Freyr: Seinni hálfleikur endar 1-1
Auglýsing

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur og Keflavík áttust við í 1. umferð Bestu deildarinnar eftir skiptingu fyrr í kvöld. Víkingar unnu þá afar sannfærandi 4-1 sigur. Fótbolti.net náði tali af Haraldi Frey Guðmundssyni, þjálfara Keflavíkur, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 1 Keflavík
"Mér líður ágætlega en ég er vonsvikinn með tapið, en að sama skapið áttum við lítið í þessum leik. Víkingarnir talsvert sterkari en við í báðum hálfleikum og vinna hérna á heimavelli verðskuldað."
Keflavík lentu 4-0 undir strax í upphafi síðari hálfleiks en þeir unnu sig betur inn í leikinn þegar líða fór á seinni hálfleikinn.
"Fyrri hálfleikurinn er mjög slakur af okkar hálfu, sérstaklega varnarlega og staðan 3-0 í hálfleik og svo strax í kjölfarið er orðin 4-0 staða strax í byrjun seinni. En við náðum að svara með marki og seinni hálfleikur endar 1-1 og við eigum einhver moment eftir að við skorum."
Keflavík er í raun og veru ekki að spila upp á neitt annað en sæti í deildinni og heiðurinn, hvernig er að gíra upp leikmenn í leiki þegar það er lítið undir?
"Mótið er samt sem áður ekki búið fyrir okkur þó að við höfum tryggt okkur í topp 6 og nú er það í raun og veru búið og nýtt mót byrjað. Við getum ennþá náð fjórða sætinu og við stefnum á það."
Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.