14.09.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Farke: Einn af bestu framherjum deildarinnar

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Daniel Farke var himinlifandi eftir frábæran 4-1 sigur Leeds United gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni fyrr í kvöld.

TENGT EFNI
England: Leeds fór illa með Newcastle
Heimamenn náðu forystunni með sjálfsmarki þegar marktilraun Ao Tanaka breytti um stefnu af tveimur varnarmönnum áður en boltinn endaði í netinu.
„Ég myndi ekki kalla þetta heppni, við komum okkur í gott skotfæri og áttum góða marktilraun sem breytti um stefnu af varnarmanni og endaði í netinu," sagði Farke, sem er ekki ánægður með markið sem Leeds fékk á sig í stöðunni 4-0.
„Það er martröð að fá mark svona seint á sig eftir stórkostlega frammistöðu. Við gáfum þeim mark og það er það eina sem skyggir á frábæran sigur. Strákarnir voru magnaðir í dag og sýndu nánast fullkomna frammistöðu.
„Við vorum að spila gegn sterkum andstæðingum sem eru öflugir í skyndisóknum. Við gerðum vel að nýta færin okkar og loka á þá. Við sýndum yfirburði og verðskulduðum sigurinn."
BBC útnefndi Dominic Calvert-Lewin sem besta leikmann vallarins og hrósaði Farke honum að leikslokum.
„Hann er fullur sjálfstrausts og í frábæru formi. Hann býr yfir miklum gæði og ég býst við því að hann leiði hópinn áfram. Við höfum engar áhyggjur af því að hann skori ekki mörk, en þetta snýst um miklu meira heldur en bara mörkin. Hann er tilbúinn að stíga upp og taka ábyrgð, hann gefur sig allan fyrir liðsheildina og er einn af bestu framherjum ensku úrvalsdeildarinnar.
„Í kvöld ætlum við að njóta sigursins og á morgun hefst undirbúningur fyrir næsta leik."
Leeds er í þriðja sæti á upphafi úrvalsdeildartímabilsins, með 8 stig eftir 4 umferðir.

Jaissle: Undirstöðuatriðin klikkuðu - Elanga meiddur

Mynd: EPA