Fotbolti.net
14.09.26 - 22:35
Magnús Atlason

Sölvi um Gylfa og landsliðsverkefnið: Við verðum eiginlega að sjá til

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur og Keflavík áttust við í 1. umferð Bestu deildarinnar eftir skiptingu fyrr í kvöld. Víkingar unnu þá afar sannfærandi 4-1 sigur. Fótbolti.net náði tali af Sölva Geir Ottesen eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 1 Keflavík
"Mjög sáttur með frammistöðuna, frábær fyrri hálfleikur hjá okkur, og sigldum þessu heim í seinni hálfleik."

Víkingar fóru með 3-0 forystu inn til búningsherbergja og bættu strax við fjórða markinu í upphafi seinni hálfleiks. "Var planið að halda áfram?"

"Jájájá, bara halda áfram sama standardi. Við viljum alltaf spila upp á okkar besta, sama hvernig staðan er í leiknum sjálfum, þá viljum við bara halda sama standardi í gegnum allan leikinn."

Róbert Orri Þorkelsson skoraði sitt fyrsta deildarmark en tímabilið hefur verið litað af meiðslum.

"Robbi var virkilega flottur í leiknum, gott líka fyrir hann að skora, en ég lít frekar á varnarframmistöðuna hans í leiknum, hún var mjög góð, hann var frábær á bolta. Þannig að það var hrikalega gaman að sjá Robba eiga svona góðan leik."

Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í hóp í dag.

"Hann er bara með smávægileg meiðsli þannig að við þurfum bara að sjá til hvernig staðan á honum verður."

Verður hann klár í landsleikina sem framundan eru?

"Við verðum eiginlega að sjá til, ég get engu svarað um það, við þurfum bara að sjá hvernig næstu dagar fara hjá honum og svo bara metum við það hvernig hann verður á æfingum og í aðdraganda næsta leiks og þar á eftir landsliðsverkefni."

Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.