Fotbolti.net
14.09.26 - 21:22
Ívan Guðjón Baldursson

Yamal ekki ánægður með eigin frammistöðu á HM

Yamal ekki ánægður með eigin frammistöðu á HM
Canon

Mynd: EPA

Spænska ungstirnið Lamine Yamal vonast til að hreppa Ballon d'Or verðlaunin eftir að hafa unnið spænsku deildina með Barcelona og heimsmeistaramótið með Spáni.
Yamal gæti verið valinn þriðja árið í röð
TENGT EFNI

Yamal gæti verið valinn þriðja árið í röð

Yamal hefur síðustu tvö ár verið valinn sem efnilegasti leikmaður heims á verðlaunahátíð Ballon d'Or, en nú vonast hann til að vinna aðalverðlaunin. Hann viðurkennir samt að hann sé ekki sáttur með eigin frammistöðu á HM í sumar, þar sem hann skoraði aðeins eitt mark og lagði ekkert upp er Spánn vann mótið.

„Fyrir hvaða annan leikmann sem er þá hefði frammistaðan mín á HM verið mjög góð, en ekki fyrir mig. Ég er ekki ánægður með hvernig ég spilaði. Ég verð að gera betur á næsta móti," segir Yamal.

„Það eru stórkostlegir leikmenn til í sögunni eins og Messi, Cristiano og Maradona en ég held að það hafi aldrei gerst áður að einhver var búinn að vinna svo mikið á mínum aldri. Kannski Pelé, en þetta hefur aldrei gerst áður í nútímafótbolta. Fólk heldur að ég ætli kannski að byrja að slaka á núna því ég er búinn að vinna svo mikið, en það er ekki rétt.

„Ég veit að ég þarf að gera þúsund hluti í viðbót til að vinna mér inn eilífðarsæti í fótboltasögunni."


19 ára gamall Yamal hefur þegar unnið EM, HM, La Liga og Copa del Rey á ferlinum.

Mourinho um Yamal: No comment
TENGT EFNI

Mourinho um Yamal: No comment

Yamal ekki ánægður með eigin frammistöðu á HM
Canon

Mynd: EPA

Yamal ekki ánægður með eigin frammistöðu á HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.