Stebbi Gísla: Svona er fótboltinn
Auglýsing

Stefán var ekkert sérstaklega ánægður með stigið í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við vildum þrjú stig í dag,\" sagði Stefán Gíslason, þjálfari Hauka, eftir 1-1 jafnftefli gegn Gróttu í Inkasso-deildinni í kvöld.
Haukar voru 1-0 yfir í hálfleik og sú staða var sanngjörn.

„Mér fannst spilamennskan góð, fyrri hálfleikur sérstaklega. Við spiluðum vel og sköpuðum fullt af færum, gefum lítið sem ekkert á okkur, en það vantaði bara að setja boltann í markið.\"
Leikmenn Gróttu mættu af krafti í seinni hálfleikinn og náðu að jafna stuttu eftir að dómarinn flautaði seinni hálfleikinn á.
„Þetta var sjálfsagt eitthvað einbeitingarleysi, við komum ekki klárir inn í seinni hálfleikinn,\" sagði Stefán í viðtali að leik loknum.
„Svona er fótboltinn, við hefðum tvö, þrjú núll yfir hálfleik og fótboltinn er þannig á meðan þú skorar ekki þá er hætta á að þér sé refsað.\"
Stefán tók við Haukum fyrir tímabilið eftir að hafa verið að þjálfa í yngri flokkum hjá Breiðabliki. Hann var spurður út í stökkið úr yngri flokkum í meistaraflokk.
„Þetta hefur verið skemmtilegt. Maður lærir fullt af hlutum í þessu og þetta hefur verið skemmtilegt.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.