Dragan Solak, eigandi Southampton, segist ekki ætla að reka Tonda Eckert, stjóra liðsins, eftir njósnamálið svokallaða.
„Hann á skilið annað tækifæri og ég myndi gefa honum það. Ég stend algjörlega við bakið á honum því ég tel að hann sé mjög góður stjóri," sagði Solak.
„Mér og stjórninni finnst að hann eigi skilið að fá stuðning. Ég mun að sjálfsögðu ræða við liðið og stuðningsmenn. Að lokum er þetta mín ákvörðun."
Southampton hefur fengið fjögurra stiga refsingu eftir að það var dæmt í málinu. Það kom Eckart á óvart að njósnir væru bannaðar.
„Ég sagði við hann að hann hafi nánast brotið í mér hjartað. Ef hann gerir þetta aftur mun hann drepa mig. 'Þegar ég sé þig í júlí, ef þú kannt ekki reglur enska boltanns utanbókar getur þú ekki unnið fyrir mig," sagði Solak.



