Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 02. júlí 2021 09:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nítján ára eftirmaður Wijnaldum - DCL til Man Utd
Powerade
Ryan Gravenberch
Ryan Gravenberch
Mynd: Getty Images
Dominic Calvert-Lewin
Dominic Calvert-Lewin
Mynd: EPA
Sergio Ramos
Sergio Ramos
Mynd: Getty Images
Föstudagsslúðrið er í boði Powerade og tekið saman af BBC.



PSG er komið langt í viðræðum sínum við Sergio Ramos (35) sem er samningslaus. (ESPN)

Manchester United vill fá Dominic Calvert-Lewin (24) frá Everton. (Sun)

Declan Rice (22) hefur neitað tveimur tilboðum frá West Ham um nýjan samning. Chelsea, Man Utd og Man City hafa áhuga. (Guardian)

Nuno Espirito Santo, nýr stjóri Tottenham, hefur sagt Harry Kane (27), fyrirliða liðsins, að hann verði ekki seldur nema Nuno veiti blessun sína á það. Kane vill fara í sumar. (Telegraph)

Everton vonast til að krækja í Ben White (23) frá Brighton og vinna baráttu við Arsenal um miðvörðinn. (Mail)

Arsenal hefur staðfest áhuga á Manuel Locatelli (23) en neitar að hafa boðið í þennan miðjumamnn Sassuolo. (Times)

Juventus býst ekki við því að Cristiano Ronaldo (36) fari í sumar. (Goal)

James Ward Prowse (26) er skotmark Aston Villa. Ward Prowse er leikmaður Southampton. (Football Insider)

Barcelona vonast til að selja Junior Firpo (24) til Leeds. Barca vill líka lána Miralem Pjanic (31). Pjanic er undir smásjá Juventus og Tottenham. (Sport)

Liverpool fylgist með Yves Bissouma (24) miðjumann Brighton og Ryan Gravenberch (19) hjá Ajax. Liverpool þarf að fylla í skarð Gini Wijnaldum sem fór til PSG. (Liverpool Echo)

Tottenham ætlar að berjast við Everton um að ná Conor Coady (28) frá Wolves. (Football Insider)

Arsenal vill selja Willian (32) í sumar. (Football London)

Leeds hefur hafið viðræður við Cagliari um miðjumanninn Nahitan Nandez (25). Nandez er sagður kosta um 26 milljónir punda. (Calciomercato)

Real Madrid vill fá Diogo Dalot (22) frá Man Utd. Dalot var á láni hjá AC Milan í vetur. (Calciomercato)
Athugasemdir
banner
banner