KFG tókst ekki að endurheimta toppsæti 3. deildar karla í dag en liðið gerði 1-1 jafntefli við Kormák/Hvöt á Samsung-vellinum.
Garðbæingar lentu undir á 12. mínútu leiksins er Aliu Djalo kom gestunum frá Blönduósi yfir.
Það var ekki fyrr en í byrjun síðari hálfleiks sem Kári Pétursson náði að troða inn jöfnunarmarki en þau urðu ekki fleiri.
KFG er í 2. sæti með 19 stig en slakari markatölur en Víðir sem er á toppnum. Kormákur/Hvöt er í 9. sæti með 10 stig.
KH og Sindri gerðu þá 1-1 jafntefli á Hliðarenda. Ibrahim Sorie Barrie skoraði fyrir Sindra á 33. mínútu en það var Haukur Ásberg Hilmarsson sem jafnaði úr vítaspyrnu á 65. mínútu.
Sindri er í 4. sæti með 15 stig en KH í neðsta sætinu með 7 stig.
Úrslit og markaskorarar:
KH 1 - 1 Sindri
0-1 Ibrahim Sorie Barrie ('33 )
1-1 Haukur Ásberg Hilmarsson ('65 , Mark úr víti)
KFG 1 - 1 Kormákur/Hvöt
0-1 Aliu Djalo ('12 )
1-1 Kári Pétursson ('47 )
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir