26.09.26 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég veit að það hljómar skringilega að segja það"

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Úr leiknum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ég tel okkur ekki hafa vanmetið þá," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands, eftir 1-1 jafntefli gegn Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar í dag.
Arnar talaði um það á fréttamannafundi að Ísland hefði mætt líkamlega sterku liði og Eistar hefðu unnið baráttuna í dag.

„Við mættum líkamlega sterku liði sem spilaði beinskeyttan fótbolta. Við erum ekki mjög líkamlega sterkt lið. Ég veit að það hljómar skringilega að segja það þar sem við erum Íslendingar en það er ekki lengur okkar helsti styrkleiki, eins og áður var. Við erum núna með tæknilega sterka leikmenn sem eru snöggir. Það eru alltaf styrkleikar og veikleikar, en við náðum ekki að nýta okkar styrkleika gegn veikleikum eistneska liðsins," sagði Arnar við eistneskan fréttamann.
Næst á dagskrá er leikur gegn Lúxemborg, þar þarf íslenska liðið að stíga upp.
„Ég held að við þurfum að bera virðingu fyrir því að við töpuðum 3-1 fyrir Lúxemborg fyrir korteri síðan og við þurfum að bera virðingu fyrir því að þetta er á útivelli. Við megum ekki sætta okkur við að vera bara tekníska liðið og sætta okkur við að vera 'bully-aðir' í seinni boltum og návígum."
„Það voru of mörg augnablik þar sem við þurftum að vera meira 110% þegar seinni boltinn datt og návígin voru að koma. Það er erfitt að taka þessu. Þetta þarf að skoða verulega. Þetta er sameiginlegt verkefni hjá mér og liðinu, að stíga saman og að allir taki ábyrgð. Auðvitað ber ég mestu ábyrgðina," sagði Arnar.