26.09.26 - 19:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Albert á leið í myndatöku - Útskýrir skiptinguna

Albert fór meiddur af velli í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Albert fór meiddur af velli í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Albert Guðmundsson fór meiddur af velli þegar Ísland gerði jafntefli gegn Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Albert hélt um öxl sína þegar hann fór af velli, leit ekki vel út.
Albert hélt um öxl sína þegar hann fór af velli, leit ekki vel út.
„Það var snemma ljóst að þeir væru að fara að vera mjög líkamlega grimmir á okkur. Það var lítið búið af leiknum þegar Albert meiðist, því miður. Hann er einn af okkar betri leikmönnum," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, á fréttamannafundi eftir leik.
„Staðan á honum? Hann fer í myndatöku strax á eftir. Þetta leit ekki vel út fyrir öxlina á honum."
Það var óvænt að Ísak Snær Þorvaldsson kom inn á fyrir Albert.
„Hugmyndin með því að fá Ísak inn var að fá líkamlega sterkan leikmann inn, fá hlaupin inn fyrir líka," sagði Arnar. „Ísak stóð sig vel. Það var hugsunin bak við að fá hann inn á."

Ísak Snær kom inn á fyrir Albert.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson