Fotbolti.net
26.09.26 - 21:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gakpo: Þetta sumar var mjög erfitt

Gakpo: Þetta sumar var mjög erfitt
Canon

Mynd: EPA

Sumarið var mjög erfitt fyrir Cody Gakpo en unnusta hans missti fóstur og Gakpo brotnaði niður og hágrét stuttu síðar þegar hann skoraði í leik Hollands gegn Marokkó á HM.

Þá hafði Man City mikinn áhuga á honum og hann var sagður vilja yfirgefa Liverpool. Hann ræddi við Telegraph um sumarið.
„Þetta sumar var mjög erfitt í alla staði. Ég lét þetta bara síast inn og sá hvering þetta fór og þetta fór svona. Ég vil baraa njóta lífsins með fjölskyldu og vinum. Og spila fótbolta með liðsfélögunum hér hjá félaginu," sagði Gakpo.

Gakpo hefur byrjað tímabilið frábærlega með Liverpool eftir að hafa fengið mikla gagnrýni á síðasta tímabili. Hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp fjögur í sex leikjum.

„Maður verður að standa sig þegar maður spilar með jafn stóru liði og Liveprool. Ég veit að ég hefði getað geert mun betur á síðasta ári. Ég veit ekki hvort gagnrýnin sé ósanngjörn, kannski var hún það en ég skil hana að einhverju leyti. Maður verður að vinna hjá Liverpool og sýna að þetta sé eitt af bestu félögum heims. Við gerðum það ekki í fyrra, ég meðtalinn," sagði Gakpo.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.