Fotbolti.net
27.09.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp um Adeyemi: Kann að meta allan pakkann

Klopp um Adeyemi: Kann að meta allan pakkann
Canon

Mynd: EPA

Karim Adeyemi lagði upp mark Þýskalands á Felix Nmecha í 1-1 jafntefli geng Hollandi í Þjóðadeildinni á dögunum.

Hann hefði getað skorað í leiknum en klúðraði dauðafæri. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Jurgen Klopp en hann var spurður út í klúðrið.
„Ég ætlaði einmitt að spurja hvaða klúður?" sagði Klopp léttur.

„Hann er frábær manneskja. Ég kann að meta allan pakkann. Það eru fáir sem geta valið hvort þeir taki boltann með vinstri eða hægri fæti þegar þeir hlaupa. Hann er líka ótrúlega snöggur. Getur hann spilað betur? Já. En hann gat líka verið mun verri. Upp og áfram."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.