Fotbolti.net
27.09.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Keane ósammála Rodri: Þeir kusu að svindla

Keane ósammála Rodri: Þeir kusu að svindla
Canon

Mynd: EPA

Man City var fundið sekt sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á reglum ensku úrvalsdeildarinnar.

Brotin áttu sér stað á árunum 2009 til 2018 og eru misalvarleg, en enn hefur ekki verið ákveðið hver refsingin verður.
Rodri um dóminn: Ekki hægt að taka það af okkur
TENGT EFNI

Rodri um dóminn: Ekki hægt að taka það af okkur

Rodri, fyrrum leikmaður Man City, sagði að árangur liðsins var fullkomlega verðskuldaður og ekki keyptur með peningnum.

Spekingurinn Roy Keane er ósammála honum.

„Þetta er tímabært. Þetta hefur staðið lengi yfir. Ég er ósammála skilaboðum Rodri. Þetta var val félagsins, þeir kusu að svindla," sagði Keane.

„Hvað sem þeir hafa unnið undanfarin ár, þá eiga þeir skilið að vera refsað. Hvar við byrjum og endum með það er erfitt en þeir voru að svindla. Þeir hafa verið fundnir sekir og verða að taka lyfin sín. Þetta er áfall að vera sekir af svona mörgum ákæruliðum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.