Fotbolti.net
27.09.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fyrrum leikmaður Bayern og City þjálfar Salah

Fyrrum leikmaður Bayern og City þjálfar Salah
Canon

Mynd: EPA

Jerome Boateng, fyrrum leikmaður Bayern og Man City, verður aðstoðarþjálfari Trabzonspor í Tyrklandi.

Samkvæmt Fabrizio Romano hefur Boateng náð samkomulagi við tyrkneska félagið.
Boateng er 38 ára fyrrum varnamaður en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Hann er þekktastur fyrir tímann sinn hjá Bayern en hann spilaði 364 og skoraði 10 mörk frá 2011-2021. Hann gekk til liðs við félagið frá Man City þar sem hann spilaði eitt tímabil.

Þá spilaði hann 76 landsleiki fyrir hönd Þýskalands. Hann verður í þjálfarateymi Thomas Reis sem tók við Trabzonspor fyrr í þessum mánuði. Leikmenn á borð við Mohamed Salah, Fabinho og Andre Onana spila með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.